
Iðan fræðslusetur
- Hönnun
- Ráðgjöf
- Bakendaforritun
- Framendaforritun
- Vefþjónustutengingar
Tilgangurinn var að gera fræðsluvef sem sniðinn er að þörfum notandans þar sem hann getur aflað upplýsinga, skráð sig á og sótt námskeið, sýslað með sveinspróf og sótt um raunfærnimat svo einhver dæmi séu nefnd. “Iðan þekkir félagsmanninn” er gildi sem hefur fylgt verkefninu frá upphafi.
Nýr og endurbættur vefur
Iðan fræðslusetur leitaði til okkar varðandi þróun og uppsetningu á nýjum vef og kennslukerfi. Vefurinn tengist við ýmis kerfi, til að mynda eru rafrænar innskráningar í gegnum Dokobit, tengingar við Reiknistofu lífeyrissjóða og Total fyrir upplýsingar um greiðslustöðu notenda í starfsmenntasjóð, tengingar við Áskel áskriftarkerfi fyrir meðhöndlun kortaupplýsinga og rukkana fyrir námskeið með greiðslukortum og greiðslukröfum, tengingar við Microsoft Business Central fyrir reikningagerð, tengingar við Diplomasafe fyrir staðfestar viðurkenningar ofl.
Hlutverk Overcast
Hönnun og þróun á nútímalegan fræðsluvef þar sem þarfir notandans væru hafðar að leiðarljósi í gegnum alla vinnuna.
Mikilvægi þess að upplýsingar væru settar fram á áberandi hátt til að svara helstu spurningum sem notendur kunna að hafa. Einfalda skráningu á námskeið og að öll verð séu sýnileg því þau geta verið mismunandi eftir aðild. Að lokum mínar síður með yfirliti yfir þau námskeið sem notandi hefur skráð sig á og lokið.
Árangur verkefnisins
Notendaprófanir hafa sýnt að vefurinn uppfyllir þarfir notenda, þeir eiga auðvelt með að afla þeirra upplýsinga sem þá vantar. Umsýsla kennara á námskeiðum Iðunnar hefur verið einfölduð til muna. Búið er að sjálfvirknivæða alla ferla sem snúa að umsýslu námskeiða hjá Iðunni, handtök sem áður voru framkvæmd handvirk, sem skilar sér í að starfsfólk Iðunnar getur betur sinnt öðrum störfum.