

BL
- Hönnun
- Ráðgjöf
- Framendaforritun
- Bakendaforritun
- Vefþjónustutengingar
www.bl.is
BL er bílaumboð BL ehf er með umboð fyrir 12 bílaframleiðendur og er fjölbreyttara úrval nýrra bíla vandfundið.
Um verkefnið
Tilgangur verkefnisins var að hanna og þróa nýjan vef fyrir BL, með sérstakri áherslu á gagnvirkan sýningarsal fyrir nýja bíla. Markmiðið var að skapa notendavænan og smekklegan vef sem uppfyllti þarfir BL og viðskiptavina þeirra. Verkefnið var flókið að því leiti að BL er með umboð fyrir margar ólíkar tegundir bíla og uppfylla þurfti kröfur um að geta birt upplýsingar á smekklegan og skýran hátt fyrir allar þessar ólíku tegundir.
Hlutverk Overcast
Overcast bar ábyrgð á allri þróun og hönnun vefsins. Teymið sá um þróun og útfærslu á gagnvirkum sýningarsal fyrir nýja bíla. Notendavæn hönnun og UX/UI lausnir einfölduðu leit og flokkun bíla. Teymið sá einnig um að samþætta bakendakerfi BL og við ytri kerfi til að tryggja að rétt gögn væru sótt og birt á vefnum.
Þróuð var einföld og skýr birting gagna um bíla sem tryggir að notendur eiga auðvelt með að átta sig á upplýsingum um þá bíla sem þeir skoða. Sjálfvirk samræming gagna tryggir að allar upplýsingar um bíla eru réttar og uppfærðar í rauntíma.
Skjáskot af vefnum
Árangur verkefnisins
Vefurinn hefur fengið jákvæð viðbrögð bæði frá viðskiptavinum BL og innan fyrirtækisins. Mikil aukning hefur orðið á umferð og aukning í sölu á bílum sem erfitt var að auglýsa áður en vefurinn var settur í loftið.